Ég er aðal töffarinn í bænum! algjör grallaraspói :) Ég veit alveg að ég er ótrúlega sætur á myndunum... en endilega lesið líka gullkornin mín...þau eru alveg ómetanleg! ;) (Mamma & pabbi hafa ákveðið að læsa síðunni, en ef þú veist í hvaða stjörnumerki ég er geturðu séð mig betur! ;))



Mamma og Mikael Darri eru að tala saman við kvöldmatarborðið, og MD er að segja frá deginum sínum á Ásborg. Lýsingarnar vægast sagt hasarlegar...
MD: ég og Gabríel vorum að berjast við vondu kallana...
Mamma: vondu karlana? eru vondir karlar á Ásborg?
MD: já! og þeir eru alltaf að slást! og Gabríel var upp á steinunum, svona! og þá, ha, mamma, lemjaði gaurinn í Gabríel og hann bara datt beint niður! Þá þaut ég til hans, og mamma veistu!?? Hann var lifandi!











Mikael
Nafn þetta er komið úr biblíunni, komið af nafninu "Mika'el" sem merkir hver er sem guð?

Mikael erkiengill er af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverk guðs.

Darri
Ýmsar kenningar eru til um uppruna og merkingu þessa nafns. Flestir vilja meina að það geti verið tengt nafnorðinu "darr" sem merkir spjót.

Það sem er reyndar merkilegt að vita um nafnið mitt er að mömmu mína dreymdi nafnið mitt löngu áður en ég varð til! Draumurinn sagði að hún eignaðist strák sem héti Mikael Darri og stóð mjög fast á því að ef ég yrði strákur myndi þetta verða nafnið mitt! :)


Ég er lítill ljónsungi!

Tími Ljónsins er hásumarið, heitasti tími ársins.Þessa dýrð má sjá í fari Ljónsins, sem oft hefur skrautlega og stóra sál og sterka þörf fyrir að tjá sig.

Ljónið hefur tilhneigingu til að draga að sér athygli og lenda í miðri hringrás atburða. Ljónið sækir oft í störf sem gera það áberandi, eða eru þess eðlis að það verður að þungamiðju umhverfisins.

Í kínversku stjörnuspekinni er ég Hundur, sem þýðir að ég verði einlægur, tryggur, ábyrgur og efnaður :)

Afmælissteininn fyrir ágústmánuð er Mánasteinn, og tengist gleði. Enda er ég yfirleitt ofsalega ánægður með lífið og tilveruna!